Efsta leitið
July 22nd, 2005 by Helga Þórey
Útvarpshúsið er svo til dautt í júlí. Það eru aldrei fleiri en 20 manns í matsalnum í einu. Ég heyri varla orð fyrir utan skriftstofuna mína og síminn hringir ekki neitt. Það sem heldur húsinu á lífi er pískrið. Gangarnir iða af ósýnilegu lífi. Hver fer upp? Hver heldur þú? Verður það einhver nýr? Verður það einhver hæfur? Flestir eru sammála um að það hlýtur að vera einhver sem er hlýðinn.
