Ég hugsa að ég fari að drífa mig heim
July 12th, 2005 by Helga Þórey
Það fer ekki fyrir veðurblíðunni hér í Efstaleitinu. Mér finnst það gott. Ég var búin að kvíða fyrir að þurfa að sitja inni í góða veðrinu í allt sumar. Við Marta horfðum saman (símleiðis) á veðurfréttirnar í gær og það spáir ekki fallega.
Þetta er skrýtnasta sumar í heimi. Það er ekki líkt neinu öðru. Kannski er það vegna þess að ég er að verða þrítug. Eins og það skipti máli, HNEGG. Ágætur samstarfsfélagi minn tjáði mér það á Hróarskeldu að þegar maður yrði þrítugur þá myndi fólk hætta að bjóða manni í partý en í staðinn væri manni boðið í matarboð. Mér finnst reyndar ágætt að fara í matarboð. Eiginlega bara skemmtilegra en sum partý. Þetta sagði allt sem segja þurfti.
One Response to “Ég hugsa að ég fari að drífa mig heim”

Ég er eimitt búin að vera að ræða þessi “fullorðins matarboð” og við ætlum að halda kippupartý til æviloka ;)