Feed on
Posts
Comments

Archive for July, 2005

Netkviss eru alltaf sönn

Your IQ Is 125

Your Logical Intelligence is Above Average
Your Verbal Intelligence is Genius
Your Mathematical Intelligence is Genius
Your General Knowledge is Exceptional

A Quick and Dirty IQ Test

Sumt skil ég ekki

*Hvernig fólk getur kosið Halldór Ásgrímsson
*Fólk sem vill einkavæða heilbrigðiskerfið
*Veðurfarið á Íslandi
*Þá sem langar ekki til útlanda
*Gunnar Þorsteinsson í Krossinum
*Þá sem eru ekki jafnaðarmanneskjur
*Tom Cruise
…og margt margt fleira.
Þetta toppar listann minn núna.
Uppfært 29/8 2005: Þessi linkur átti að vera með.

Djöfull er ég reið!

Ég eyddi hálftíma í færslu sem hvarf!

Ég var ekkert full í gær

Ég var bara að gá hvernig bjór væri á bragðið.

Veðurspá

Ég er sko fokkíng farin úr vinnunni. Það spáir rigningu frá og með morgundeginum og alla helgina. Meiriháttar.
Sólbað – Austurvöllur/Sirkus – NÚNA!!!
Haha – ég er svo bráðlát og klikkuð að ég bara slökkti á öllu og gleymdi að gá hvað klukkan var – hún var ekki tími fyrir strætó neitt.
Annars ætla ég að tala [...]

Það er af sem áður var

Ég er laus úr hlekkjum svefnsins. Í morgun fór ég á fætur klukkan átta, stökk í sturtu, rauk út að henni lokinni, tók strætó númer 11 (minnir á þristinn), var kominn klukkan níu í vinnunna, undirbjó fund, og núna hef ég fullt af verkefnum að sinna. Dæmigert að ég skuli einmitt finna mér tíma til [...]

Magnað

Ég er búin að gera allt sem ég get gert í vinnunni í dag. En það eru ekki liðnir átta tímar. Á ég þá bara að sitja hér og spila Sokoban eða hvað? Ég hugsa að ég fari jómfrúarferð mína með leið 13 niður í bæ.

Efsta leitið

Útvarpshúsið er svo til dautt í júlí. Það eru aldrei fleiri en 20 manns í matsalnum í einu. Ég heyri varla orð fyrir utan skriftstofuna mína og síminn hringir ekki neitt. Það sem heldur húsinu á lífi er pískrið. Gangarnir iða af ósýnilegu lífi. Hver fer upp? Hver heldur þú? Verður það einhver nýr? Verður [...]

Tekken-mótið

Hann Undrapabbi ætlar að halda Tekkenmót og ég er ekkert smá spennt. Ég verð að æfa mig hjá Lilla-Mjása. Komin er upp heimasíða mótsins þar sem allar frekari upplýsingar er að finna.

Það er nú svo merkilegt að þegar maður fréttir af óförum annarra þá á maður til að gleðjast. Hver kannast ekki við að hlæja að dettandi gamalmennum, klósettpappír upp úr buxnastrengnum, fólki sem strætóbílstjórinn viljandi skilur eftir og öðru slíku? Nú vill svo einkennilega til að flensa nokkur hefur lagst á meira og minna alla [...]

Á sunnudagsmorguninn kom ungur maður hlaupandi inn í íbúðina í mína og æpti: Helga, ég fann Jesú!
Og það er alveg satt. Hann fann hvar Jesú hefur haldið sig allan þennan tíma. Það er í bakgarðinum á Grettisgötu 11. Ekki furða að ég sofi vel… Annars fór ég á Snoop, það var voða gaman. Nema [...]

Ég er kona minna eigin hæpa

Ég get játað það núna að mér fannst Man of Constant Sorrow ekkert spes í ofmetnu myndinni með George Clooney. Reyndar voru allir búnir að segja að hún væri geðveikislega, óggislega frábær! Kannski var búið að hæpa hana of mikið – eða eitthvað – kannski þarf ég að sjá hana aftur. ENÍVEIS, þá var ég [...]

Leyndardómar internetsins

[image:helga klosett.jpg]
Á þessari mynd er ég á klósettinu. En ef þið eruð ekki með Firefox vafra (browser fyrir þá sem skilja ekki íslensku), þá sjáið þið ekki rassgat. Ég hef tekið þá ákvörðun að hata Internet Explorer og elska Firefox. Sérstaklega þetta með Ctrl+T og Ctrl+F. Endalaus hamingja!!! Ég mæli með að allir fari á [...]

Strætó

Það vita nú flestir sem þekkja mig að ég hata nýja leiðarkerfi strætó. Ekki bara vegna þess að það dregur úr þjónustu við nema og úllínga, heldur líka fatlaða, öryrkja og gamalt fólk. Núna verður miklu lengra fyrir mjög marga að labba í strætó en áður. Ég hlakka svo til þegar ég verð gömul og [...]

Það fer ekki fyrir veðurblíðunni hér í Efstaleitinu. Mér finnst það gott. Ég var búin að kvíða fyrir að þurfa að sitja inni í góða veðrinu í allt sumar. Við Marta horfðum saman (símleiðis) á veðurfréttirnar í gær og það spáir ekki fallega.
Þetta er skrýtnasta sumar í heimi. Það er ekki líkt neinu öðru. Kannski [...]

Antony

Kannski næst þegar ég er í bömmerstuði.

Jahá

Vil benda Amnesty International að það er leim að halda mótmæli bara þegar 50 Englendingar eru drepnir en ekki alla hina dagana sem íröksk eða afrísk börn fá að anda sínu síðasta vegna peningagræðgi vesturlanda. Skamm Amnesty.

Tvær latar systur

Ég á þrjár systur og einn bróðir. Solla minnsta systir mín er dugleg að blogga og þannig frétti ég ósköpin öll af ævintýrum hennar. Litli bróðir minn hann Jói (a.k.a. Lilli-Mjási) er svo mikill msn-nasisti að afdrif hans og tónlistarsmekkur (smekkur?) eru aldrei utan seilingar. Það sama er ekki hægt að segja um miðsysturnar og [...]

Týpískt

Í dag er fyrsti dagurinn sem ég er ein í hlutverki dagskrárritstjóra. Ég er lasin og verð að fara heim. Þar sem ég er orðin ofnæmisgerpi mikið, getur verið að Rykgildran að Efstaleiti 1 hafi magnað þetta ógeð í mér… Vonandi lagast ég sem fyrst. Ég ætla að reyna að ná a.m.k. 10 tímum af [...]

Mikið óskaplega var gaman að skreppa til Danmerkur þessa helgi. Ekki bara að sjá frábærar hljómsveitir, heldur líka að vera með vinum og slappa af í góða veðrinu. Þetta var besta hátíðin sem ég hef farið á hingað til.
Ég mæli með að ákveða með stuttum fyrirvara að fara á Hróa. Þá getur maður verið [...]

Next »