Fjandans andskoti
June 21st, 2005 by Helga Þórey
Stelpan sem á húsið mitt vill flytja í það aftur. Ég þarf sumsé að flytja. Ég nenni því ekki! Ég flutti þangað svo að ég gæti hætt að flytja endalaust eins og fáviti. Djöfull er ég fúl. Þetta var ekki það sem samið var um. Glætan að ég geti fundið íbúð um mitt sumar.
HelvítishelvítisHELVÍTI!!!
2 Responses to “Fjandans andskoti”

Hvur andskotinn!!!!
Ég get svarið það !!! þetta er rosalegt….samúðarkveðjur…skal láta þig vita ef ég heyri um eitthvað.