Hjelp April 27, 2005
OK. Yasmin > út. Marvelon > út. Ég nenni ekki að menga mig meira með hormónum. Það er bara ógeðslegt og krabbameinsvaldandi.
Annars varð ég fyrir því láni að fimmtugur maður úr blaðamannastétt reyndi við mig á laugardaginn. Hann slefaði og sagði: Ertu góð í rúminu? Ég sagði: I’ve never wanted you more… Hvað meina svona fíbbl? Í hvaða menningarsamfélagi er þetta gild pikköpplína? Ég bara spyr. Hann spurði mig líka endalaust hvað ég vildi í lífinu og svaraði ég því heiðarlega - skuldlausa framtíð. Svo elti hann mig á Sirk, settist á stól og drapst og Hjördís þrufti að henda honum út.
Ég held að ég vilji ekki ganga út. Nema kannski Kamilla vilji giftast mér.