Feed on
Posts
Comments

Í gær

…talaði ég við einn af tónleikahöldurum Hot Chip. Hann er svosum fínn – eða hvað? Hann er vinur vinkonu minnar svo að ég skal ekki nafngreina hann… Hey, hann sagði að þetta hefði verið með ráðum gert að láta þá spila svona seint. Ég spurði hann hvort hann héldi að íslenskir tónleikagestir fíluðu að bíða svona lengi. Honum fannst ég vera klikkuð og áleit mig ekki hafa neitt kredit í tónlistarmálum…

Sem sýnir hvað hann er mikið fífl. Hann var yfirlætislegur og gaf mér framkomuna: Ekki halda að þú skiljir hvernig á að halda góða tónleika. HALLÓ! Ég hef ekki haldið lélegt partý síðan ég var 12 ára. Og þessir tónleikar sökkuðu. Fólk gekk út. Það vildi ekki bíða til tvö eins og á ellukvöldstónleikum. Þetta var lélegt. Destiny ættu að hætta að hlusta á Bush eða Vinyl og hlusta á þá sem fara á tónleika og vita hvað þeir/þær eru að tala um.

Hann er með lélegan tónlistarsmekk. Hann ætti kannski að flytja inn Anastaciu eða Gwen Stefani. Fokking ömurlegi DJ og ömurlegi tónleikahaldari. Sama hvort hann sættir sig við það, þá klúðruðu þeir þessu. Betra að viðurkenna það bara og læra. Frekar en að þusa á kallrembulegan hátt um hvernig tónleikar eiga að vera. Hann er örugglega með lítið typpi.

2 Responses to “Í gær”

  1. on 19 Mar 2005 at 19:20 heiður

    alveg óþolandi svona fólk sem er með puttann upp í rassgatinu á sér..ömurlegir tónleikar! Ég er samt glöð að heyra að það voru ekki Hot chip sem tóku þá ákvörðun að láta bíða svona eftir sér..piffh!

  2. on 20 Mar 2005 at 18:09 kamilla

    þekki stelpu sem slysaðist upp á hann einu sinni og þú hefur rétt fyrir þér.