Mánudagur
February 28th, 2005 by Helga Þórey
Gat nú verið. Auðvitað þurfti ég að taka rútu til Húsavíkur til þess að geta flogið aftur suður. Það eru einhver álög á mér… Þetta var nú reyndar fínasta útsýnisferð. Ég hef ekki farið um þessar sveitir í fimmtán ár. Ég minntist þess þegar ég kom frá Færeyjum, þegar vélin lenti í 10 sek og fór svo aftur í loftið og beint til Keflavíkur. Ég var ekki glöð.
Ég er á bíl núna. Isuzu-pallbíl afa míns. Varla hef ég augum litið ljótari bifreið, nema kannski gamla bílinn hans Undrapabba. Það var alveg einstaklega óaðlaðandi farartæki.
3 Responses to “Mánudagur”

Mér þykir þessi bíll alveg geðfríkaður!! Sérstaklega lyktin..einstaklega aðlaðandi..
Hver er undrapabbi??
Borgar er Undrapabbi í Undralandi.