Jibbí!!!
February 26th, 2005 by Helga Þórey
Það er staðfest. Hot Chip koma til Íslands og spila á NASA föstudaginn 11. mars. Veit ekki um miðaverð ennþá – en vá hvað það verður GAMAN!
Í gær fór ég í (believe it or not) Ædol-partý hjá Margréti systur. Það var alveg dúndurfínt. Sérstaklega þar sem ég var með mínum ástkæru Akureyrar-systrum. Mikið óskaplega er nú fínt að eiga þessa stóru fjölskyldu. Ég er alveg dæmalaust rík. Svona eins og Kormákur afi. Ég vona að ég þurfi ekki að keyra til Húsavíkur eða Sauðárkróks til að fljúga héðan því þokan er svo þykk. Veður.is sagði að það ætti að létta til þannig að ég krosslegg putta…
