Feed on
Posts
Comments

Archive for January, 2005

Einu sinni var

Ég man þegar við Fjóla systir stóðum vaktina í nístandi kulda með Emil lítinn, mótmælandi stuðningsyfirlýsingu Íslands í Íraksmálinu. Reiðar þrömmuðum við um götur bæjarins og við önnur tækifæri var staðið fyrir utan bandaríska sendiráðið, Alþingishúsið, Hótel Sögu og svo framvegis… Ég man líka eftir öllum Kárahnjúkamótmælunum. Djöfull er ég ennþá reið yfir því.
Af hverju [...]

Jæja

Í nýjustu fréttum: Kristjana og Þossi eignuðust strák síðastliðinn sunnudag (9.1.), hann var hlunkur eins og pabbi hans. Hnegghnegg.
Ég er mætt aftur til starfa eftir innilegu dauðans og við Hjördís héldum okkar fyrstu hljómsveitaræfingu í gær. Þegar við verðum búnar að sigra heiminn þá verður allt betra. Mér hefur aldrei dottið í hug að stefna [...]

Erðanú!

Ég er búin að vera veik í 4 daga. Ojbarasta. Mér hefur dottið ótrúlegasta fólk í hug og hringt í. Jöminn. Svo er ég með sækó-draumfarir á hverri nóttu.
Mig vantar fleiri vídeómyndir.

Til Undrapabba

Hvað er að gerast í gestabókinni minni? Getur þú hent þessu?
Ég hélt skemmtipartý í gær.

Færeyjar

Það var dansað, sungið, hlegið og grátið. Ég held ég hafi aldrei átt jafn skemmtilega utanlandsferð. Gömul andlit tóku á móti mér í Götu og voru endurfundirnir jafnvel sætari en hinir fyrstu. Hjarta litla Íslendingsins hoppaði og skoppaði yfir gestrisni frændfólksins. Fjölskylda Eivarar var mér sem mín eigin og ég get vart hugsað til þeirra [...]