Posted in Almennt on December 28th, 2004 1 Comment »
Að hanga með fötluðum krökkum í níu klukkutíma er klikkun. Sérstaklega þar sem þau, eins og önnur börn, eru alveg snar á meðal jafnaldra sinna. Aldrei datt mér í hug að ég myndi fara á fréttastofuna og slappa af.
Tíminn á blogginu er loksins kominn í lag. Þetta leit frekar undarlega út á tímabili.
Á morgun langar [...]
Posted in Almennt on December 27th, 2004 1 Comment »
Ég mæli með ConradElectro. Besta tónlist sem ég hef heyrt í langan tíma. Ég á disk og framleiði hann með glöðu geði og leyfi flytjenda.
Posted in Almennt on December 26th, 2004 5 Comments »
…fer ég til Færeyja. Núna er ég byrjuð að fá sms frá færeyingunum mínum, full af loforðum um mikla skemmtun. Mikið verður gaman. Upp á stólinn, upp á stólinn…
Posted in Almennt on December 25th, 2004 1 Comment »
Hei – allt í einu eru mjög margir daglegir gestir á síðunni minni. Borgars líka og ég held Mörtu. Kannski hefur einhver sett hate-link á okkur, eða fólk hefur frétt af manngæsku okkar og einstökum rithæfileikum. Ég tala nú ekki um hvað við erum ógeðslega skemmtilegt fólk!
Er opið í kvöld? Það væri eðlilegt miðað við [...]
Posted in Almennt on December 23rd, 2004 1 Comment »
Wassup!!! Netleysi mikið hefur hrjáð þessa konu. Ég ætla ekki að segja neitt dónalegt í dag (þótt af nægu sé að taka), vegna þess að ég vil ekki að símareikningur föður míns á Akureyri fari upp úr öllu valdi. Hann tjáði mér það að einhver hefði spurt hann hvort ég væri þroskaheft að fara í [...]
Posted in Almennt on December 14th, 2004 Comments Off
Ég heilsaði upp á gamla vinkonu í gær. Það ku vera laptop-tölvan mín hún Svínka. Við eyddum saman um fimm klukkustundum þar sem við hlustuðum á tónlist, skoðuðum myndir og ræddum fornar ástir. Núna er ég byrjuð á nokkrum ólíkum verkefnum sem ég ætla að klára fyrr en síðar. Ég henti úr Svínku helling af [...]
Posted in Almennt on December 12th, 2004 3 Comments »
Ég var að tjilla í Máli og menningu áðan þegar vinkona mín gerði mér þann langþráða greiða að kynna mig fyrir manninum sem ég hef viljað giftast í nokkur ár. Því miður á hann aðra konu og með henni nokkur börn en það tefur ekkert fyrir dagdraumum mínum um háfleygar umræður um bækur og pólitík. [...]
Posted in Almennt on December 12th, 2004 Comments Off
Mín ástkæra Sunneva á ammæli í dag. Hún er orðin kona. 20 ára. Magnað hvað við erum góðar vinkonur en ég var byrjuð að fara í sleik þegar hún fæddist. Í gær fór ég líka talsvert í sleik. Keppnin var mjög skemmtileg. Yfirburðasigur. Einnig var gaman á Hjálmum. Dansidans og húllumhæ. Steini var svo indæll [...]
Posted in Almennt on December 11th, 2004 2 Comments »
Ég verð að bæta því við að ég og Kamilla ætlum í sleik-keppni í kvöld. Það verður nú aldeilis spennandi að sjá hver sigrar!
GO HELGA, GO HELGA!!!
Posted in Almennt on December 11th, 2004 2 Comments »
Ehm. Sit núna uppi í rúv eftir horror dauðans. Ég er nebblega bæði búin að fara í IKEA og Kringluna í dag. Það er mesta no-no í heimi að gera á laugardegi í desember. Í IKEA var afgreiðslupakkið í pulsusjoppunni svo forheimskt að mig langaði til að berja þau. Það þarf ekki TVÆR manneskjur til [...]
Posted in Almennt on December 10th, 2004 2 Comments »
Ég er að tapa mér úr ást á hinum stórkostlega söngvara Vilhjálmi Vilhjálmssyni.
Vegir liggja til allra átta
enginn ræður för,
hugur leitar hljóðra nátta
er hlógu orð á vör
og laufsins græna á garðsins trjám
og gleðiþyts í blænum.
Þá voru hjörtun heit og ör
og hamingja í okkar bænum.
Vegir liggja til allra átta
á þeim verða skil,
margra er þrautin þungra nátta
að [...]
Posted in Almennt on December 10th, 2004 Comments Off
Þetta er nú meira ruglið.
Posted in Almennt on December 3rd, 2004 1 Comment »
Úr færslu frá síðustu helgi (names have been changed to protect the innocent): Um daginn sá ég hrikalega sætan gaur í stúdentablaðinu. Hann er finnskur skiptinemi með dredda. Nokkrum dögum síðar, þegar ég var að dansa við annan gaur hitti ég þann finnska, heilsaði, fattaði að ég var upptekin og sagði því á afar dramatískan [...]
Posted in Almennt on December 2nd, 2004 1 Comment »
Á slaginu níu mun ég mæta,
í partý á klúbbi sem mig mun kæta.
Áfengi frítt á boðstólnum er,
hver er það sem með mér fer?
Posted in Almennt on December 2nd, 2004 Comments Off
Alltaf þegar ég kemst ekki á netið dettur mér margt snjallt að segja en þegar ég er hvar sem er annarsstaðar er ég mælskan ein og kemst ekki í tölvu. Okkur Mörtu er tíðrætt um þetta vandamál. Annars er gaman að segja frá því að ég er að fara í starfsmannajólaeitthvað á laugardaginn. Það er [...]