Feed on
Posts
Comments

Archive for September, 2004

Enn af tónleikum

Hin stórgóða íslenzka hljómsveit Hjálmar halda útgáfutónleik sinn á GrandRokk næstkomandi laugardag. Þessu ætti enginn að missa af. Allamalla hvað það verður gaman.
Uppfært: Þetta eru þær upplýsingar sem í boði eru. En GrandRokk er náttúrulega þekktur fyrir að halda sig við 500-1000 kall. Sem betur fer…

Matarást

Oft hef ég blótað mötuneyti Ríkisútvarpsins. Í dag ætla ég að elska það. Ég fór upp og ímyndaði mér að ég þyrfti að éta einhvern óskapnað þegar við mér blöstu rúnnstykki af bestu gerð. Með camembert osti. Og grænmeti og skinku og nammi og jess og gleði og gaman. Ég ákvað að fá mér malt [...]

Bíll er díll

Á meðan foreldrar mínir eru erlendis verð ég á bíl. Mikið óskaplega er ég heppin kona. Það munaði nú minnstu að þetta yrði ekki en sannfæringarkraftur minn var gjörsigraði þau að lokum.
Rannveig vinkona mín átti einu sinni tuskukrókódíl. Hann hét Díll. Á föstudaginn eignaðist hún stelpu. Það var ekki auðveldur díll vegna þess að [...]

Hörmungarástand

Núna er Halldór Ásgrímsson orðinn forsætisráðherra. Oj bara. Og þá er ég ekkert endilega að tala um hann persónulega og alla þá pólitísku bresti sem hann býr yfir, heldur það að flokkurinn hans er með of lítið fylgi til þess að það sé réttlætanlegt að hann fái þetta embætti. Það er drullufúlt að forsætisráðuneytið hafi [...]

Ljóðakvöld

Í gær fór ég á ljóðakvöld þar sem fólk las upp eigin verk. Misgóð að sjálfsögðu. Ég nennti ekki að vera fram að miðnætti. Ég fór frekar heim og var sofnuð fyrir klukkan eitt. Ætli ég sé að róast?
Ég nenni ekki að rífast við fólk. Sérstaklega ekki þá sem mér þykir vænt um. Afhverju [...]

Við hittumst aftur

Það var nú sérlega skemmtilegt að áðan hringdi Pétur Sigurgeirsson fyrrverandi biskup og spjallaði við mig um fréttir. Þetta gladdi mitt gamla hjarta þar sem hann skírði þennan trúleysingja fyrir rúmum 28 árum síðan. Hann var afar glaður þegar ég sagði honum að hann hefði skírt mig. Þá leið mér vel.

Tíðindi

Ragga borðaði kjúkling! Ragga sem hefur ekki étið almennilegan mat í 11 ár, borðaði kjúkling. Hún kemur á miðvikudaginn. Ætli hún verði með fjaðrir?

Tónleikar

I met this guy.

Heima er bezt pt. II

Þegar ég kom heim úr vinnunni seint í gærkvöldi, fór ég úr regnblautu buxunum mínum, lagðist á sófann og horfði á heilalausa bíómynd úr safninu. Þar sem ég lá uppgötvaði ég stórmerkilegan hlut. Mér leið vel ein heima hjá mér. Kannski var það merkilegt því ég hef þurft að aðlagast einlífinu ásamt því að venjast [...]

Ég heimta

…að fá að sjá Hjálma. Sem fyrst. Hvar eru útgáfutónleikar, ha? Ég er búin að kaupa plötuna og vil núna fá mitt tilbaka.
Annars er ég farin að ganga í gömlum gallabuxum. Það eru alltaf góðar fréttir.

6. september

Til hamingju með ammælið vinir mínir nær og fjær. Enginn annar dagur hefur elt mig jafn mikið í gegnum lífið.
Dagný Þóra Baldursdóttir 1975
Gro Oldeide 1975
Dagný Björk Hreinsdóttir 1975
Olumide December 1973
Davið Roach Gunnarsson 1982
Marý varð líka 26 í gær. Þetta er náttúrulega bilun. Í nótt dreymdi mig stelpu úr vinnunni sem heitir Lovísa. Frekar fyndið þar [...]

Lífið mitt

Ég er flutt og ég bý alein. Magnað. Ég er enn að taka uppúr kössum og þarf að fá ísskápinn minn. Svo var ég að vinna í gærkvöldi – vitlaust að gera. Að passa Tinna í einn dag er fínt. Hann vekur lukku allstaðar sem við förum. Mig vantar internet. Þetta er mest dreifhuga færsla [...]