Er i thessum bae – vodafone er pakk sem bullar i mer og eg vil fa simann minn i laaaaaaaag!!!! annars er rigning en mer er fokk sama. vid forum amk a moose i gaer og hittum marga goda vini. verd ad fa sima – satan fokk og helviti
Archive for June, 2004
roskilde-festival.dk
Posted in Almennt on June 25th, 2004 Comments Off
Eftir þrjá daga fer ég til Danmerkur á Hróarskeldu og svo til Norge að hitta gamla vini. Er að hugsa um að skrifa ferðasögu. Það gæti nú verið aldeilis skemmtilegt þar sem ég verð með netaðgang stóran hluta tímans.
Hæ hó jibbíjeij! Allamalla.
Dagar án markmiða
Posted in Almennt on June 20th, 2004 Comments Off
Það er gott þegar maður er ekki viss hvort maður eigi að hanga á sófanum, borða, liggja í rúminu, horfa á sjónvarpið eða whatever. Ég er hætt að skilja hvað fólk sér við nám, það er svo viðbjóðslega leiðinlegt í skóla. Ef ég væri í skóla núna hefði ég ekki getað átt letihelgi án [...]
vera æðislega nýkomin af jammi og vera fokk sama. En stórkostlegt kvöld sem þetta er búið að vera. Það byrjaði með góðum mat + ennþá betri félagsskap, svo tók við (villu) ganga að íbúð vinkonu minnar (þar sem við áttum stórkostlegt kvöld), eftir það þá var það barinn. Þar voru allir fyrirsjánlegir. So insane, but [...]
Símadaman er á förum
Posted in Almennt on June 16th, 2004 Comments Off
Í dag er síðasti dagur í skrifstofuleik Helgu Þóreyjar. Framvegis get ég sofið út og látið eins og gerpið sem ég er. Ég þarfekki að mæta í vinnuna fyrr en klukkan fimm og get því sofið út hvern einasta dag þangað til ég fer til Danmerkur. Í kvöld langar mig til þess að fara í [...]
Kommentakerfi
Posted in Almennt on June 15th, 2004 1 Comment »
Stelpurnar sögðu að það væri bilað. Ég sé ekki að það sé bilað. Ég sé ekki betur en allt sé í lagi. Heiður átti ammæli í gær eins og frægt er orðið. Við lánuðum henni skilríki enn eina ferðina en hún mátti ekki drekka á barnum, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Neinei… Við fórum á Sirkus, [...]
Ég er iNews gella dagsins
Posted in Almennt on June 14th, 2004 Comments Off
Ó ég elska að vinna hér. Hvort sem ég er þreytt eða sofin þá er alltaf eitthvað skemmtilegt að gerast. Mér finnst gaman að sýna fólki það sem ég kann í forritinu okkar hér. Ekki það að ég sé eitthvað klár í því, það er bara svo gaman að vera sá/sú sem leitað er til…. [...]
Úff hvað þessi helgi er búin að vera fín. Ég er ekki mikið búin að taka uppúr kössum, en eitthvað þó. Aðallega er bara sól og bráðum er sextándi júní. Ég vil að mér verði boðið í partý. Sem fyrst.
Kvöldmatur
Posted in Almennt on June 11th, 2004 Comments Off
Í dag var síðasti Kastljósdagur og mér finnst það leitt. Ég finn eitthvað annað. Á eftir ætla Hjördís og Heiður að koma til okkar Mörtu og grilla. Marta er búin að krydda kjötið og við bíðum spenntar. Marta er líka í fríi og er búin að þrífa og laga til, eini svarti bletturinn á íbúðinni [...]
Eftir stutta stund
Posted in Almennt on June 10th, 2004 Comments Off
fer ég úr vinnunni. Ef allt gengur að óskum þá verð ég orðin útvarpsstjarna. Reyndar er ég í DV í dag og myndin, sem er léleg útgáfa af starfsmanna skírteininu mínu, er það versta sem ég hef séð. Sérstaklega þar sem ég hataði hana fyrir.
Mín stökk upp í hald (starfsmanna) og bað um nýja [...]
Sigggróið rassgat
Posted in Almennt on June 9th, 2004 Comments Off
Núna á þessari stundu bíð ég eftir að þurfa að fara að vinna. Mér leiðist óumræðanlega. Það besta er það að vinnan mín er á svo undarlegum stað að ég nenni ekki að fara á milli atriða. Á ég að hanga í Kringlunni á milli 16:30 og 18:00? Ég held nú ekki. Síðast þegar ég [...]
Ég er gaman
Posted in Almennt on June 8th, 2004 Comments Off
Djöfull er lífið meiriháttar!!! Maður veit aldrei hvenær gaman verður. Í gær var óvænt og skemmtilegt, í dag er moðerfokkíng best. Magnað hve lítið lítill svefn getur truflað mann þegar allt gengur vel.
Helga bleikskýjaglópur með einföld en góð framtíðarplön. Heim í strætó!
Ég er veikur
Posted in Almennt on June 7th, 2004 Comments Off
Í gær var ég að raða snyrtidóti í grind til að hafa inni á baði þegar ég allt í einu uppgötvaði að ég myndi falla í yfirlið ef ég hreyfði mig meira. Svo er ég búin að hósta í alla nótt og er bara eitthvað ónýt. Dæmigert að verða lasinn þegar maður vill mest af [...]
Og enn af vinnu
Posted in Almennt on June 3rd, 2004 Comments Off
Fór í vinnuna í gær, tussuleg as hell. Kemst að því eftir hádegi að ég fæ ekki að fara heim vegna Kastljóss. Fór svo í Kastljós sem var öðruvísi en venjulega vegna Óla Grís. Er reyndar mjög ánægð með hann. Þar sem ekkert var með hefðbundnum hætti varði þáttur + fréttir til að verða níu [...]
Símadama tekur völdin
Posted in Almennt on June 2nd, 2004 Comments Off
Eftir einn dag í starfi hef ég komist að því að ekkert getur stöðvað framgöngu mína í starfi sem skrifstofudama. Góðan daginn. – Nei hann er ekki við, get ég tekið skilaboð? Fólk sem hringir á fréttastofuna er ekki mjög hrifið af því að skilja eftir skilaboð. Stundum (sérstaklega kallar) verður það fúlt ef viðkomandi [...]
