Ég er skrýtin
May 11th, 2004 by Helga Þórey
Áðan kíkti ég í Eymundson til að lesa dönsku blöðin. Þar sá ég bók sem inniheldur komplett allar franskar sagnir. Þetta þótti mér afar sniðug bók. Er það ekki klikkun að hafa bara áhuga á námsefni þegar maður er ekki að læra það? Ég var ekki dugleg í frönsku, lærði aldrei (og þá meina ég aldrei) heima, en fékk góðar einkunnir. Var reyndar með einn besta kennara sem ég hef augum litið (Ingunn Garðarsdóttir er snillingur) og hafði góðan félagsskap.
Þetta er skólaganga mín í hnotskurn: Allt er skemmtilegt á meðan ég þarf ekki að gera það. Bilun, bilun, bilun.
One Response to “Ég er skrýtin”

ekki gætirðu verið svo góð að senda mér nafnið á bókinni? það væri nefninlega rosa næs að hafa þær allar á einum stað ef þú skilur mig …
mailið mitt er : olgaosk@hotmail.com