Blogg May 27, 2004
Ég vil hafa bloggið mitt svona.
Að fara í vinnuna er skyndilega það eina sem ég þarf að gera á daginn. Ég þarf reyndar að laga til og pakka niður fyrir flutninga - en því má fresta ef betra býðst. Mig vantar vinnu í júlí. Mér dettur ekkert í hug.
Ég er búin í prófum, ég er búin í prófum, ég er búin í prófum, ég er búin í prófum!
Það er líklega skrýtið en mamma hittir stundum naglann á höfuðið. Fyrir 3 árum var ég eitthvað að bömmerast og hún sagði: Bíddu bara róleg, lífið breytist svo fljótt. Það er alveg satt. Ekkert tekur meira en 2-4 vikur að lagast. Núna er ég bara glöð og finnst ég alls ekki vera fávitinn. Veiveiveivei. Ég held ég sé bara frábær + gella :)
Maður getur misst sig í dægurlagatexta, sérstaklega þegar maður er viðkvæmt flón.
You set the scene…
Where are you walking, Ive seen you walking
Have you been there before?
Walk down your doorsteps, youll take some more steps
What did you take them for?
Theres a private in my boat and he wears
Pins instead of medals on his coat
Theres a chicken in my nest and she wont
Lay until Ive given her my best
At her request she asks for nothing
You get nothing in return
If you want she brings you water
If you dont then you will burn
You go through changes, it may seem strange
Is this what youre put here for?
You think youre happy and you are happy
Thats what youre happy for
Theres a man who cant decide if he should
Fight for what his father thinks is right
There are people wearing frowns wholl screw you up
But they would rather screw you down
At my request I ask for nothing
You get nothing in return
If youre nice shell bring me water
If youre not then I will burn
— —
This is the time and life that I am living
And Ill face each day with a smile
For the time that Ive been givens such a little while
And the things that I must do consist of more than style
There are places that I am going/Therell be time for you to start all over
This is the only thing that I am sure of
And thats all that lives is gonna die
And therell always be some people here to wonder why
And for every happy hello, there will be good-bye
Therell be time for you to put yourself on
Everything Ive seen needs rearranging
And for anyone who thinks its strange
Then you should be the first to want to make this change
And for everyone who thinks that life is just a game
Do you like the part youre playing
I see your picture
Its in the same old frame
We meet again
You look so lovely
You with the same old smile
Stay for a while
I need you so, oh, oh, oh, oh
And if you take it easy
Im still teethin
I wanna love you, but
Oh, oh, oh, oh, oh, oh, oh
This is the time and this is the time and
It is time, time, time…
Mér líður svo illa inni í mér þegar ég þarf að díla við aðstæður sem ég ræð ekki við. Ohh.. ætli ég þurfi ekki að horfast í augu við það að ég er stjórnsöm. Í fimmhundraðasta skipti. Fyndið hvernig maður rekur sig á sömu gallana aftur og aftur. Ég er auminginn núna.
Þetta er ekki jafnslæmt og það lítur út fyrir að vera. Ég er bara að kafna úr komplexum og er bara alveg fáránleg. Ég vona að þetta lagist þegar ég er búin í prófum. Það er eitt lag sem ég hlusta mikið á. Ég gleymi hvað það heitir en það er með Love - hverjum öðrum? Annars er ég bara að leita að leið út í sólina og ég mun láta það gerast, þessi helvítis bömmer gengur ekki. Klárist próf, KLÁRIST ÞIÐ!
Ég finn lyktina…

You are Barbatine! You are well-read and love to
learn. You were gloomy in your youth and found
nothing you liked to taste, but you’re older now,
and have an incisive sense of humour that
makes you and others smile.
Which Barbapapa Personality Are You?
brought to you by Quizilla
Ég er loðin kona því ég er að safna lappahárum til þess að geta vaxað þau í burtu. Dem hvað ég er sexí!
Það er hræðilega erfitt að hætta með kærastanum sínum og þurfa svo að láta sér standa á sama. Mér stendur ekkert á sama. Ég veit vel afhverju þetta er besta lausnin, en ég á samt svo erfitt með að láta tímann líða og finna frið. Stundum vildi ég að hann gæti skilið að þrátt fyrir allt þá þykir mér vænt um hann og finnst skrýtið að sjá hann fara. Reyndar fór ég alveg jafnmikið frá honum, en það er samt erfitt.
Verst af öllu er að geta ekki gengið að gamalli vináttu vísri. Þegar maður er ekki tilbúinn til að vera með einhverjum en vill samt geta tekið upp símann og sagt hæ án þess að allt fari til fjandans. Ég nenni ekki að verja mig og ríða hundrað strákum til þess að halda einhverju ímynduðu andliti sem engu máli skiptir. Ég ætla bara að komast í gegnum þetta eins heiðarlega og ég get, án þess að vera vond og án þess að gera eitthvað sem ég sé eftir. Kannski tekst það ekki neitt, en ég ætla a.m.k. ekki að vera fáviti.
Oft líður mér samt eins og ég sé fávitinn, hlutir hafa gerst og fullt af skít hefur verið mokað í báðar áttir. Ég veit samt að þetta þurfti ekki að fara svona, það bara gerði það samt og ég tek mína ábyrgð líka, enda vil ég ekki byrja saman aftur. Ég er samt ekki fávitinn, það er enginn fávitinn akkúrat núna. Ég er bara svo hrædd um að hann verði fávitinn, ég verði hrikalega sár og allir sjái það.
Áðan kíkti ég í Eymundson til að lesa dönsku blöðin. Þar sá ég bók sem inniheldur komplett allar franskar sagnir. Þetta þótti mér afar sniðug bók. Er það ekki klikkun að hafa bara áhuga á námsefni þegar maður er ekki að læra það? Ég var ekki dugleg í frönsku, lærði aldrei (og þá meina ég aldrei) heima, en fékk góðar einkunnir. Var reyndar með einn besta kennara sem ég hef augum litið (Ingunn Garðarsdóttir er snillingur) og hafði góðan félagsskap.
Þetta er skólaganga mín í hnotskurn: Allt er skemmtilegt á meðan ég þarf ekki að gera það. Bilun, bilun, bilun.
Ég hitti hann áðan í stutta stund (ég gisti reyndar hjá honum, siðsamlega). Við rifumst ekki neitt og það var fínt. Stundum veit ég ekki hvar rifrildin byrja. Oft er það vegna þess að honum finnst ég vera að ráðast á sig eða að ég missi þolinmæðina. Þolinmæði er einmitt mikilvægur faktor í þessum rifrildum. Hann missir hana. Ég er ekki að reyna að halda því fram að ég sé fullkomin eða neitt slíkt. Stundum er ég algert fífl, hef enga þolinmæði og tryllist.
Núna er tími til að hreyfa sig. Ég nenni ekki að vera í sjúka ruglinu sem þetta samband var lengur. Gallinn við planið er að mig langar ekki til að hætta að fara á Sirkus, reyndar vil ég oft fara minna, en það er mikið vegna þess að það er alltaf sama fólkið þar. Málið er kannski að kíkja þangað, en það er pain þegar hann er þar. Allt verður öfugsnúið og skrýtið. Æ-i hvað er ég samt að rugla. Ég nenni bara ekki að þurfa að vera með þetta ofan í mér. Ég vil fá að vera í friði. Skrýtið hvað þetta er félagslega erfitt - honum finnst það reyndar líka. Enda er þetta ekkert persónulegt óþol, ég er bara ekkert að fá frið til að díla við þessi leiðinda, leiðinda, erfiðu, sáru sambandsslit.
This just in… svona til að vera fullkomlega í mótsögn við sjálfa mig, verð ég að minnast á eftirfarandi: Djöfull líst mér vel á afleysingagaurinn í vinnunni. Hann er svaka sætur. Svo er hann æðislega almennilegur og hættur að ganga með þennan helv. hring sem hefur fælt mig hingað til. Namminamm - strákakjöt. Ekki það að ég sé stressuð, það besta við að kynnast fólki er að maður hættir ekkert að þekkja það. Ég ætla að sjá hvað gerist næst þegar við hittumst, annars er líka bara fínt að horfa og vera ekkert að flækja málin. Ég er mjög afhuga samböndum þessa dagana, enda væri annar gaur ekkert nema snuð fyrir mig núna. Rebound sýning vorsins verður ekki í boði Helgu. En í sumar, þá ætla ég að ríða eins og hóra á útsölu.
Núna er tími til að fara í klippingu, ég er farin að fyrirlíta eigið hár! Þegar ég greiði það nýkomin úr sturtu þá er það eins og að gaddavír, oj.
Ég nenni ekki á Sirkus lengur. Af hverju eru aldrei neinir nýjir þar? Þá meina ég sem eru ekki 15 ára og nenna að tala um eitthvað meira intressant en hvað þeir voru fullir um síðustu helgi. Mig vantar líka fólk sem skilur Simon & Garfunkel, hefur pólitískar skoðanir (rökstuddar takk), hatar leigumarkaðinn, hefur metnað í starfi, er næs við aðra, er ekki upptekið af því hver og hvað er kúl, sér í gegnum Coldplay/Damien Rice og gerir sér grein fyrir að jafnrétti kynjanna er ekki veruleiki.
Jájá, aumingjarnir ykkar - ástandið er skárra, en skárra er ekki fullnægjandi.
Djöfull er gott að tuða á blogginu, nákvæmlega ástæðan fyrir því að ég byrjaði :)
Það er svo asnalegt þegar það er hellingur að gerast í lífi manns en það er samt ekki hægt að blogga um það. Erðanú, erðanú! Núna þarf bara smá tími að líða, þá verður allt eins og það á að vera. Mér líður samt frekar vel, það er gott þegar léttir umlykur hjartað. Eini gallinn er sá að þegar ég er sneisafull af létti eða öðrum góðum tilfinningum þá er alveg dæmigert að ég hætti að nenni einföldustu hlutum, t.d. læra fyrir próf, fá mér nýtt debetkort, græja heimabankann svo ég geti möndlað með Vísa þar, og svo framvegis……..
Svo er ég að panta mér flug til Norge, já moðerfokk ég er að fara þangað + á Roskilde! Ætli það verði gaman?? Döh! Djöfull verður frábært að hitta alla gömlu vini mína, ég hef ekki farið til N í 11 ár, samt bjó ég þar í 3. Ég og systir erum líka að hugsa um að skella okkur á næsta ári og fara í mega-stelpuferð. Á Hróarskeldu verður líka gamli bekkjarbróðirinn sem ákvað að meika það í Noregi að spila svo ég hitti hann líka, gaman. Reyndar hugsa ég að um leið og ég er búin að borga fyrir Skandinavíutúrinn að þá fari New York efst á listann. Ég er búin að vera að fantasera um að kíkja þangað í haust. Gott að vera með gistingu í helstu borgum (nema Köben, ég er ýkt pissed).
Annars gengur bara vel að setja sig á hausinn, ég er svosem ekkert að hafa áhyggjur af því að það gangi ekki að klára alla peningana sem ég fæ. PLERGH! Ég ætla líka að vera vesturbæingur í sumar, sem er ágætt á meðan ég finn mér íbúð til að kaupa.
Ég er að hugsa um hvaða fallegu liti og fonta ég vil hafa í mínu nýja bloggi. Mmmm litir, mmmm blogg, læra hvað?
Ég man þegar við stóðum á tónleikum og hann spurði mig hvernig ég fílaði listamanninn. Mér finnst hann ekkert spes, sagði ég, hann er með of mikið industrial noise fyrir minn smekk. Þá sagði hann: Djöfull er ömurlegt að gera eitthvað með þér. Þér þarf alltaf að finnast allt leiðinlegt. -Já, en ég er ekki þessi industrial týpa, sagði ég, ég er eiginlega að bíða eftir næstu hljómsveit. Helga, ég nenni ekki að vera með þér hérna, ég skil ekki afhverju ég er eiginlega með þér, þú ert svo neikvæð.
Það sem eftir lifði kvölds var fullkomlega ömurlegt helvíti - en ekki hvað.
Dómsmálaráðherra sér ekki ástæðu til að breyta hegningarlögum þannig að barnaníðingar verði dæmdir til meðferðar. Árangur sálfræðimeðferðar hafi ekki verið metinn skipulega og það verði ekki gert á skömmum tíma. Þá sé vandmeðfarið að veita slíka heimild vegna eins brotaflokks en ekki annarra.
Djöfull er hann mikið fífl!