Feed on
Posts
Comments

…eins og þeir séu að springa að innan. Ég er svo spennt og óð úr tilhlökkun til einhvers sem ég veit ekki hvað er. Núna er ég að hlusta á Blue Öyster Cult og er bókstaflega að springaaaaaaaa. Vorfiðringur?

Svo er ég líka orðin upptekin af því að ég verð að leika mér í lífinu og hafa það skemmtilegt – í þeim skilningi að fara til útlanda, grípa tækifæri og ekki að sjá eftir neinu. Ég sagði við mömmu að mér finnist ég verða að búa til góðar minningar, það verður ekki aftur snúið í lífinu nema til þeirra (minninganna (mj.háfleygt)). Þess vegna verð ég eiginlega að fara til útlanda í sumar og hlæja stanslaust og hætta að láta e-ð kjaftæði vefjast fyrir mér. Better to try and fail…

Comments are closed.