Helga Þórey í Undralandi undrast

Sjálfskipaður talsmaður neytenda gubbar út úr sér hræsni og öðrum sannleik

Hvað er að??? February 27, 2004

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 5:21 pm

Ég er búin að vera í skólaverkfalli. Það er mjög slæmur ósiður sem ég tek upp ca. 1-2 á önn. Í staðinn er ég reyndar búin að læra slatta - en þó ekki nóg. Kannski er þetta e-ð óafsakanlegt þunglyndi, ég veit það ekki.

Eníveis… Þá er ekkert annað í boði en að rífa sig upp á rassgatinu og gera það sem þarf. Fyrsta verður að klára uppsöfnuð enskuverkefni, annað verður að læra fyrir eðlisfræði (mig langar til að grenja við tilhugsunina, hjelp). Ég geng til jákvæðrar hugsunar minnug þess að bráðum er skólinn búinn :)


Ný færsla February 17, 2004

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 12:22 pm

Ég er ekki að fríka út!! Ég þarf ekki þögn a.m.k. í 5 tíma á dag. HJÁLP!!!


Alltaf gaman. February 7, 2004

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 1:13 pm

Í gær byrjaði ég í þjálfun fyrir kastljósið. Afar áhugavert. Best af öllu finnst mér að læra á ógrynni tækja, auk vinnuaðferða ofl. Það er gaman að vera Helga. Ég er samt alveg að fara á límingunum vegna skólans. Það er svolítið miiiiikið að gera. Verandi skorpukona þá fíla ég þetta fínt. Allar þessar einingar eru mér betri skóli en hinar 5 annirnar sem ég hef tekið. Loksins fær maður almennilegt aðhald og reynslu í keyrslu!

50 einingar + Harka = Stúdentspróf


Núna… February 5, 2004

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 1:18 am

…hef ég tapað og endurheimt sömu vinnunna á fáum dögum. Ég fékk frábært hrós fyrir fyrirlestur minn um Bréf til Láru. Ég er mjög glöð. Best að surfa net í smá stund og gleðjast.

B.t.w. þá er ég :) kall!

P.S. Þá er ég efins og trúi því innst inni að allt muni fara til fjandans! Dæmigert!


Hei!!! February 2, 2004

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 5:39 pm

Aðeins níu heimsóknir, á virkum degi kl. 17:30!!! Ég sem er svo fokking skemmtileg, hvað er eiginlega að ykkur????