Feed on
Posts
Comments

Ég borga!

Í dag er ég búnað borga nánast alla reikninga – á morgun klára ég þann síðasta. Sá hefði verið búinn núna ef að gerpin hjá vodafone væru ekki að reyna að ljúga um hve mikið ég hef borgað þeim áður. Sem betur fer er ég með allt í heimabankanum svo að útprentanir verða ekki vandamál. Asnar.

Ég var að vinna á fiskastaðnum um helgina. Það var nú aldeilis gefandi þar sem ég hef svo mikinn áhuga á framtíð í framreiðslugeiranum. Bleh… Annars er ég bara himinlifandi yfir því að vera í fríi og er ekkert að nenna að fara í aukajólavinnuna sem ég er búin að sækja um/heimta. Allt í einu líður mér eins og ég sé að skrifa kurteisisbréf til einhvers sem er ekki jafn mikill vinur og áður – það er alveg hræðilegt, því ég elska bloggheima.

Sem fær mig til að hugsa um þetta frekar. Það er skrýtið þegar maður á ekki samleið með sumum vinum sínum lengur. Eiginlega verra þegar manni finnst þeir vera þröngsýnir asnar og nennir ekkert að leika við þá. Ég er líka stundum þröngsýnn (og jafnvel hrokafullur) asni en ég get dílað við minn eigin skít – stundum með góðu móti.
Æi, þetta var nú aldeilis p.c. og fallegt. Helga skiptir í beina ræðu: Þú ert óþolandi tussa og ég vil ekki leika við þig helvítis firrta beljan þín. Pís át.

One Response to “Ég borga!”

  1. on 05 Jan 2004 at 03:46 Marvin

    Alveg er hressandi að lesa svívirðingar frá hjartanu! :) Þú reddaðir tíðindalítilli næturvakt! Takk, takk! :)