Íslensk verðlaun.
December 5th, 2003 by Helga Þórey
Það eru alltaf fréttir þegar tilnefningarnar til íslensku tónlistarverðlaunanna eru kynntar. Áhugaverðast er þó hvernig valið er og afhverju. Ég er afar ánægð að Brain Police fengu 4 útnefningar ásamt hinni prýðilegu stúlku Eivöru Pálsdóttur sem fékk þrjár. Afhverju Birgitta Haukdal var útnefnd sem ein af flytjendum ársins skil ég ekki. Fékk hún það bara fyrir Júróvisjon eða fyrir Grís líka?? Ef hún fékk fyrir a) Júró, er það þá orðin gjaldgeng tónlist hjá íslensku tónlistarakademíunni + þetta var bara eitt (stolið) lag, er það nóg? b) Grís, getum við þá átt von á því að allir framhaldskólasöngleikja söngvarar verði útnefndir næst ásamt Steinunni Ólínu eða Selmu???
Mér finnst skrýtið að það sé ekki einhverskonar lína sem er dregin í kringum þetta – ef hún er til staðar þá er ég ekki að sjá hana. Mér finnst a.m.k. Birgitta Haukdal alveg í lagi, það sem ég er að spá er bara á hverju þessi tilnefning er byggð. Mér dettur helst í hug að þetta séu sárabætur fyrir síðasta ár þegar Írafár fékk ekkert en hefði virkilega átt að fá söngkonu ársins. En eins og frægt er orðið þá fékk Hera (???) þau í staðinn. Til huggunar má minnast á það að við munum ekki eiga það á hættu að Hera vinni til neinna verðlauna í ár.
Mínus fengu heilan haug af tilnefningum og munu örugglega hirða slatta af verðlaunum, ég fer samt að gráta ef Krummi fær söngvari ársins þegar við vitum hver á þau í alvöru skilið. Reyndar verð ég að játa að mér var byrlað útnefnt Mínus-lag um daginn og mér fannst það mjög gott. Sérstaklega lagasmíðarnar – ég sem hélt að þeir væru rasshattar, svo eru þeir bara ekki slæmir.
Já – Mugison, R. Gröndal, Bang Gang, Skytturnar, BP og Eivör
Nei – Stuðmenn, Guðrún Gunnars(meika hana EKKI) og Stuðmenn.
P.S. Glatað að Barði Jóhannsson/Bang Gang fékk ekki nema eina – hann er snillingur, er fólk ekki að sjá það? Og hvað með Forgotten Lores??? Gleymdust þeir einhversstaðar???
P.S. Borgar! Núna er það ekki blátt.
One Response to “Íslensk verðlaun.”

Það er vegna þess að þú ert að reyna að loka link með <a/> en ekki </a>