Posted in Almennt on December 24th, 2003 2 Comments »
Ó nei. Það er alveg með ólíkindum hvað ég er búin að vera bissí í jólavinnunni. Í dag er ég búin að vera á fullu, það besta var að Norðurljós buðu uppá bjór í lok geðveikinnar, namm namm.
Ég var ekkert búnað spjalla við Jonna minn í símann fyrr en í kvöld en svo [...]
Posted in Almennt on December 19th, 2003 4 Comments »
Áðan fór ég með Jonna á flugvöllinn og hann flaug til útlanda. Snökt. Ég vil ekki að hann sé að fara um jólin. Mér finnst svo erfitt að kveðjast á flugvöllum, allan tímann sem ég bjó úti voru flugvallastundirnar verstar. Sem betur fer var hann leiður líka, það gerir þetta skárra.
Ég er loksins eftir [...]
Posted in Almennt on December 18th, 2003 Comments Off
Það hringdi fullur maður upp á fréttastofu í gær. Hann sagðist vera nýbúinn að tala við biskupinn og var mjög spældur. Skv. Fulla þá sagði biskupinn að ríkisstjórnin væri búin að gera nóg fyrir öryrkja eins og hann og að hann ætti bara að hætta þessu væli. Ég fór allt í einu að hugsa um [...]
Posted in Almennt on December 18th, 2003 3 Comments »
Að greiða reikninga hefur aldrei verið mín sterka hlið. En þegar ég fann bréf frá Intrum Justica á gólfinu mínu í ca. fimmta skipti ákvað ég að láta slag standa. Ég komst að eftirfarandi: Þegar maður vill loksins greiða reikningana sína þá er alltaf einhver sem ætlar að koma í veg fyrir það. Tökum dæmi;
Helga: [...]
Posted in Almennt on December 18th, 2003 1 Comment »
Í dag er ég búnað borga nánast alla reikninga – á morgun klára ég þann síðasta. Sá hefði verið búinn núna ef að gerpin hjá vodafone væru ekki að reyna að ljúga um hve mikið ég hef borgað þeim áður. Sem betur fer er ég með allt í heimabankanum svo að útprentanir verða ekki vandamál. [...]
Posted in Almennt on December 11th, 2003 1 Comment »
Annaðkvöld ætla Skytturnar að vera með útgáfutónleika á Gauknum. Allir að mæta! Svo er ég mjög glöð yfir því að ég að ég er búin í prófum. Gisp. Ég er hinsvegar eindregið á móti því að hann Jonni minn fari til útlanda um jólin – það á að vera SAMAN á jólunum, Jonni!!! SAMAN!
Mér finnst [...]
Posted in Almennt on December 10th, 2003 Comments Off
What’s your sexual appeal? brought to you by Quizilla
Ohhh, ég hef alltaf vitað að ég væri sexí anime gella.
Posted in Almennt on December 9th, 2003 1 Comment »
Eitt próf eftir, gamangaman. Í gær komu amma og afi á Akureyri í heimsókn, þau gáfu mér sparibauk sem ég átti hjá þeim síðan ég var lítil. Api. Ég er mjög ánægð að vera búin að fá Apasparibaukinn minn. ´
Núna fer ég að læra eða fresta því þar til ég kem til Jonna, namm fresta…
Posted in Almennt on December 8th, 2003 Comments Off
Bush er fáviti og heimurinn veit það!
Posted in Almennt on December 8th, 2003 1 Comment »
Find your inner Smurf!
Ég er Gleraugnastrumpur….
Posted in Almennt on December 8th, 2003 Comments Off
Ó krapp hvað ég ætla að linka á nákvæmlega þessa færslu svo ég geti minnt mig á hvað ég er löt. Svo þarf ég líka að muna eftir önninni sem ég lærði ágætlega oft heima, lítið fyrir lokapróf, og fékk eina áttu og rest níu. Skólaleiði er nú skiljanlegur en þetta er bara downright stupid. [...]
Posted in Almennt on December 7th, 2003 Comments Off
Tvö próf á morgun – þetta er allt að koma. Ég er búin að finna fullt af efni á netinu. Ég skal, ég skal, ég fokking skal!!!!
Helga er dugleg, Helga er ánægð þegar hún er dugleg, Helga er dugleg þegar hún er ánægð. Helga ætti að hætta í skóla og fara að skrifa sjálfstyrkingarþvælu. Helga [...]
Posted in Almennt on December 5th, 2003 1 Comment »
Það eru alltaf fréttir þegar tilnefningarnar til íslensku tónlistarverðlaunanna eru kynntar. Áhugaverðast er þó hvernig valið er og afhverju. Ég er afar ánægð að Brain Police fengu 4 útnefningar ásamt hinni prýðilegu stúlku Eivöru Pálsdóttur sem fékk þrjár. Afhverju Birgitta Haukdal var útnefnd sem ein af flytjendum ársins skil ég ekki. Fékk hún það bara [...]
Posted in Almennt on December 4th, 2003 Comments Off
Það er nú gaman að segja frá því að ég er búin með uppeldisfræðiverkefnið og búin að fara í íslenskupróf. Svo þarf ég aldrei aftur að fara í íslensku. Það er eins gott að ég nái. Reyndar var ég að hugsa um að setja öll verkefni sem ég hef gert í greinar það er alveg [...]
Posted in Almennt on December 3rd, 2003 Comments Off
Ég veit ósköp vel að mér líður ekki vel þegar ég sinni ekki því sem ég á að gera. Samt geri ég ekki shit. Jújú, kannski á endanum en þangað til fresta ég og fresta og grenja um frest og fresta síðan aðeins lengur. Ég er á svoleiðis frest núna í Uppeldisfræði, ég þarf að [...]
Posted in Almennt on December 2nd, 2003 Comments Off
Það er glatað að þurfa að hafa fyrir hlutunum. Ég vildi að ég væri Tori Spelling – eða Andrew Firestone. Þá væri ég rík og gæti keypt mér B.A./B.S. próf. Að minnsta kosti stúdendspróf. Af hverju var ég hálfviti og hætti í skóla þegar ég var úllíngur, ha? Ég gerði nákvæmlega EKKERT merkilegt á milli [...]