Feed on
Posts
Comments

Archive for March, 2003

Ó eitt enn – helvítis fokk að það er ekki hægt að hlusta á muzik lengur, grenj. Ekkert nema rokk í útvarpinu, það væri allt í lagi ef það væri EIN stöð bara með hiphop & elektró.

Pleh! Ég nenni ekki að gera neitt, ég er drasl. Drasl sem heimtar að aðrir skrifi í gestabókina á blogginu sem ég nenni ekki að sinna. Garg. Allavega þá er ég alveg að fara að verða dugleg að læra – búnað gera smá í dag.
Kíkti út á fös – það var nákvæmlega eins og [...]

Ég hata það þegar fólk nennir ekki að skrifa í gestabókina mína!

Eru ekki allir í stuði? pt.3
Þetta er ekki fyndið lengur! Áðan vorum við Marta að yfirgefa okkar yndislegu menntastofnun og göngum í friði og spekt eftir gangstéttinni, þegar einhver hálfviti keyrir á mig og hnéið mitt beyglaðist. Það var VONT! Hvað er það að keyra á gangandi vegfaranda???? Ég er a.m.k. ekki alveg að [...]

Eru ekki allir í stuði ? pt.2
Hei – það var einhver gella að skrifa um blogg í sunnudagsmoggan og hún minntist ekkert á mig. Fokk ðatt. Ef að Gestgjafakellingin er þar why not me? Eða Jonni? Eða DarkBastard?
Ég er með frábæran persónuleika og alls ekki síðra eintak en Borgar (sem er kúl gaur) [...]

Eru ekki allir í stuði?
Sumir eru það samt meira en aðrir. Ég hef alltaf talið mig frekar mikla stuðpíu en greinilega ekki miðað við þessa hressu gaura sem stóðu við hliðina á mér á Sirkus á föstudaginn. Ég stóð bara og var að reyna að vera jafn töff og allir hinir þegar einhverjir úllingar þurftu [...]

Tækifæri til að láta vita að þér sé ekki sama:
Kæri móttakandi.
Undanfarna daga hefur heimurinn staðið frammi fyrir því að öflugasta og hervæddasta ríki heims hefur tekið þá ákvörðun að ráðast inn í annað
ríki, í óþökk flestallra þjóða. Íslenska ríkisstjórnin hefur því miður ekki sýnt kjark til þess að taka afstöðu gegn þessarri óheiðarlegu og ólöglegu [...]

…..og þá meina ég gamla könnunin. Það er ekkert gaman þegar allir segja manni að læra þegar ég VIL fresta því og nenni ekki að vera með móral! Þessi er mun betur til þess fallin að láta mig brosa – that’s the point!!

Þetta var versta könnun sem ég hef séð út með hana og inn með nýja!

Í þessari viku í skólanum eru árdagar. Það eru dagar skemmtunar fyrir nemendur skólans. Þeir sem ekki mæta á árdaga fá þrjár fjarvistir fyrir hvert skróp. Skylda er að mæta í þrjá atburði og amk tveir verða að vera innnan veggja skólans. Lesist; níu skróp fyrir þá sem mæta í ekkert.
Mér er reyndar alveg drullusama, [...]

You are 22% geek

OK, so maybe you ain’t a geek. You do, at least, show a bit of interest in the world around you. Either that, or you have enough of a sense of humor to pick some of the sillier answers on the test. Regardless, you’re probably a pretty nifty, well-rounded person who gets [...]

Já ókei, ég er búin að vera löt að blogga….. Áhugaverð helgi, óður maður löðrandi í tekíla mætti á barinn. Singapore Sling voru að spila á GrandRokk sem var fíntfíntfínt.
Á laugardaginn var mín ástkæra Marta toast of the town þegar hún keppti fyrst íslenskra kvenna í boxi og það á alþjóðlegum baráttudegi [...]

Davíð Oddson er formlega búinn að missa vitið. Sömuleiðis hálfvitarnir sem trúa honum. Þvílík tilviljun að hann talar um þetta allt núna – rétt fyrir kosningar. Ég hef hitt kókhausa á þriðja degi sem eru minna hrokafullir en hann. Svo eru litlir aumingjar eins og Sigurður Kári að sleikja á honum rassgatið í sjónvarpinu, eins [...]

Ég er hás í röddinni minni. En gaman að hljóma eins og afdankaða svínið sem maður er. Svo er ég að fríka út úr fyrirtíðaspennu þannig að ég grenjaði yfir sjónvarpinu meira en góðu hófi gegnir. Merkilegt hvað maður verður ógeðslega viðkvæmur, agrh!
Ég og Laila fórum á að éta sushi í gær, namm, [...]