Helga Þórey í Undralandi undrast

Sjálfskipaður talsmaður neytenda gubbar út úr sér hræsni og öðrum sannleik

February 28, 2003

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 2:19 pm

Fyrir nokkrum árum varð til útvarpsstöð sem hét X-ið. Þessi útvarpsstöð breikkaði tónlistarlegan sjóndeildarhring minn á hátt sem engin manneskja, vinahópur eða miðill hafði gert áður. X-ið var ekki alltaf með stærsta hlustendahópinn en við vorum stöðinni trygg. Daft Punk,Squeler, Fugees, Prodigy, Massive Attack, Aphex Twin og Wise Guys eru nöfn sem margir kannast við frá þessum árum. Þökk sé X-inu kynntumst við líka Rammstein, Garbage, Supergrass og fleirum. Að ógleymdum Robba Cronic og Party Zone.

Árin liðu og oft lenti stöðin í basli, hún var seld og sameinuð og við reyndum að halda tryggðina lengi. Hvar annarsstaðar áttum við, hinir forföllnu tónlistarsjúklingar, að fá dópið okkar á FM - bylgjum Íslands? Á endanum breyttist stöðin svo mikið að við sem vildum hiphop og elektró snérum okkur frá útvarpinu og fórum á netið.

Það var ekki fyrr en rétt fyrir jólin 2001 að ný útvarpsstöð í neðanjarðarhugleiðingum leit dagsins ljós. Við stilltum á 88,5 og byltingin hófst. Engir síblaðrandi útvarpsmenn, engir playlistar og engin afskipti af efninu frá peningaköllum og konum. Við fórum á netið og völdum okkur tónlist úr sífellt stækkandi gagnabanka - sem við gátum haft áhrif á með einum tölvupósti.Muzik.is var mætt. Það var ekkert mál að koma með tillögur - okkur var tekið með jákvæðum hug og það ótrúlega gerðist: Við áttum útvarpið saman! Aftur var komin stöð sem sinnti hiphoppi og elektró af eldmóði - íslenska hiphop sprengingin átti sér stað til að heyrast og tónlistarlandslag Íslands varð aldrei samt.

Röyksopp, Etienne de Crecy, Handsome Boy Modeling School, J-Live, Jurrasic 5 og Blackalicious eru listamenn sem ég hefði kannski aldrei kynnst án muzik.is. Að ógleymdum Móra, Mezzias MC, Bæjarins Bestu, Afkvæmum Guðanna og Forgotten Lores.

Núna í febrúar var lokað fyrir útsendingar hjá okkur og eina leiðin til þess að hlusta er á netinu. Það er skárra en ekkert en djöfull sakna ég þess að getað kveikt á útvarpinu og hlustað á gott grúv. Veit einhver á FM957 hver Squarepusher er? Ég hvet alla, og ekki bara þá sem hlustuðu, heldur líka þá sem skilja að það verður að vera staður fyrir alla til að til að hlusta á tónlist, til þess að setja nafnið sitt á undirskriftalistann okkar hér.

Lifi byltingin!


February 27, 2003

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 3:58 pm

Ég er svo glöð, loksins ákvað tölvan að vera samvinnuþýð og leyfa mér að hlusta á muzik.is Ég vil líka minna alla á undirskriftarlistann svo að við getum fengið stöðina okkar aftur. Lifi byltingin!


February 26, 2003

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 2:58 pm

sillyflirt
What Kind of FLIRT are you?
brought to you by Quizilla


Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 2:47 pm

What da fuck! Það var aftur gaman í skólanum, getur það verið? Það er líka brilliant veður og frí í vinnunni - ég er farin út að hanga - jibbíjei!


Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 12:35 pm

Við sem styðjum muzik.is skrifum undir HÉR!


Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 12:29 pm

Guð hvað það er næs að sitja við skrifborðið og hlusta á góða tónlist. Etta James - At Last, ummmmm. Svo er ég líka með fullt af Ellu, Miles Davis, Billie og vinum á playlistanum. Getur lífið orðið betra??? Ef ég vissi ekki að mamma les bloggið mitt myndi ég tala um einhverja fleiri yndisauka sem henta eigi hennar kynslóð. Summertime. Snillingar.

Skólinn var fínn og mig langaði ekki til að leggja hendur á neinn af samnemendum mínum, sennilega er það vegna þess að ég er farin að taka fél í fjarnámi, það er bara hryllingur að þurfa að ræða um e-ð sem krefst víðsýni þegar nokkur vel uppaldir heimdellingar eru með - too stupid man. Það er gaman að vera með unglingum í t.d. stærðfræði, þau eru svo miklu fljótari að hugsa. Ég man að ég var alltaf fyrst út úr prófi á mínum yngri árum - það er liðin tíð. Núna þarf maður að fletta til að muna.

Ég er á mínum venjulega fátæktarbotni eins og alltaf í lok mánaðar, ég hlakka svo til að vera búin í námi. Það er krapp að vera í 60% vinnu hjá ríkinu með skólanum. Það er eins og einhver hafi þakið gúrku með sandpappír, kallað hana lækkaðan fasteignaskatt á fyrirtæki, og troðið henni upp í þurrt rassgatið á manni.

Ég held ég fari að hluta á tónlist aftur. Take Five, snilld…….


February 25, 2003

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 2:10 am

ATH!

Það eiga fleiri skrifa í gestabókina, anonymous pakk!


Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 2:06 am

Þetta er alvöru blogg.

Það er svo skrýtið en mér finnst eins og ég sé að breytast, það gerist ekki oft en þegar það gerist þá er það öruggt. Mér finnst eins og þunglyndi undanfarinna vikna sé að detta af mér og það er frábært. Það var bara gaman að mæta í skólann og ég nennti að fylgjast með alveg slatta, kúl.

Annars hlakka ég fullt til að sjá mitt ástkæra merkikerti Daníel, vei. Það verður fínt. Svo finnst mér líka eins og einhverjar breytingar séu framundan og að ég fái að kynnast nýju fólki og svoleiðis kúl.

Jibbikajajei!!!! Kveðja frá landinu þar sem litir passa saman.


February 24, 2003

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 5:01 pm

Hæ hó jibbí jei ég er í voða góðu skapi! Alltaf gaman að vera Helga…. Ég mætti á réttum tíma í skólann og náði actually að hafa mig til áður en ég lagði af stað, það er persónulegt met því ég hef ekki mætt með linsur þangað síðan árið 2001.

Í skólanum hitti ég Krilla minn kæra sem ég var einmitt búin að sakna fullt. Það verður reyndar frekar glatað næsta vetur því þá verða allir vinir mínir búnir að útskrifast, snökt.

Núna ætla ég að horfa á Guiding Light, ég elska Guiding Light!!!


February 23, 2003

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 5:50 pm

Je minn eini! Það virðist vera satt - ég er alltaf að gleyma því að Muzik er í alvöru hætt, ARGH!!!! Ég hata hnakkana svo mikið að ég gæti sprungið úr reiði núna er verið að spila e-ð viðbjóðslegt USA-industrial ógeð!

Ég dró Marra með mér á Trabant á föstudaginn - það var ágætt en bara svo löng bið eftir bandinu að ég var orðin fúl og hélt á aðra bari ásamt rónavinum mínum. Það var fínt - ég hef ekki verið á Kaffibarnum for ages. Þar sem þunglyndiskastinu mínu er lokið er ég að fara í skólann á morgun þ.e. ef ég held geðheilsunni svona útvarpslaus, grenj.

Held að gaurinn sem er að syngja núna hafi einusinni verið í Roxette……………………. a.m.k. er þetta mid-mútu rödd.


February 21, 2003

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 11:35 am

What the fuck! Allt bloggið mitt er komið í italics. Die Blogspot, die!


Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 11:30 am

Jæja - þá er ég búin að liggja í þunglyndi í heila viku! Til hamingju Helga, þú ert duglegri en þú hefur verið árum saman. Það er hollt að finnast heimurinn ömurlegur öðru hverju, þá missir maður ekki tengslin við raunveruleikann á meðan, haha.

Allir eru búnir að vera að tuða um nýju eigendur muzik.is, mér finnst eftirfarandi (hæ Ragga): Djöfulsins fífl eru þetta pakk sem áttu stöðina fyrir og gátu ekki látið þessa snilldar hugmynd ganga - erðanú tussuskapur - núna er þetta pakk búið að skemma það besta sem hefur komið fyrir FM bylgjur Íslands síðan Rás 2 fór í loftið, argh!! Á meðan sit ég heima og hlusta á þessar síðustu metnaðarfullu mínútur sem brátt munu enda í einhverju helvítis ”klukkan er og það er veður úti, við elskum Heiðar Austmann (versta penna í heimi, sjá Undirtóna) drullusvaði!!!!!!!”

………og fyrst ég er byrjuð; ÉG VEIT AÐ ÞIÐ ERUÐ ÞARNA, SKRIFIÐI Í GESTABÓKINA MÍNA **STRAX!**


February 19, 2003

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 3:46 pm

Helga + Jude = Sönn ást


Jude Law: you like them romantic and British with
beautiful green eyes.

Which guy are you destined to have sex with?
brought to you by Quizilla

Ég vissi alltaf að draumur minn myndi rætast, og núna hefur hann farið frá konunni sinni fyrir mig og aðeins mig. Andvarp…


Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 2:06 am

JESÚS MINN ALMÁTTUGUR!


February 17, 2003

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 7:06 pm

Úargh! Ég er ekkert ánægð - ég er ógeðslega þreytt á morgnana - kem mér ekki að verki og ég hata það. Það er eins og eitthvað hyldýpi geti stundum komið og náð því besta frá manni. Vá hvað þetta er þunglynt. Ég er í einhverjum tímabilsblús og meika það ekki - það er eins og maður týnist. Það sem mér finnst mest spennandi núna er að vera bara heima og hanga í tölvunni. Ég get bara lesið um hitt fólkið - most of them aren’t worth knowing anyway.

Síðan fer ég út - og hvað gerist? Hafsjór af fólki sem finnst bara allt í fína að hafa verðbólgu - það ávaxtar peningana sína bara annarsstaðar! OK, ég er búin að komast að því hvað er að. Fátæktarblús, again…………………………….


Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 12:53 pm

Ráðvillt kona kallar á hjálp!

Nú hef ég brugðið á það ráð að fá mér könnun - ég er svo hrikalega óákveðin um framtíðina þannig að ég njörvaði niður helstu möguleika - jahú!


Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 2:18 am

Þetta er einmitt ég - allt meikar sens núna.

You're a cosmopolitan!  Your drink is made up of vodka, triple sec and cranberry juice.  The ultimate style guru, your other loves are cats and eating out.  A sophisticated little star!
“”Which cocktail are you?”"

brought to you by Quizilla


February 16, 2003

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 10:38 pm

Jammjamm - voða fínt að chilla í sveitinni. Ég held að ég hafi slegið eigið heimsmeti í leti - blahhhhhrg.

Eurovision voða fínt! Lolli bara kenndur í Háskólabíói! Ekki það að alþjóð hafi tekið eftir því miðað við allt tæknifokkuppið hjá rúv. Og svo vann Birgitta - akkuru kaus fleira fólk ekki Botnleðju? En bara svona for the record - Hreimur var ekki að mæma. Hann hefði samt alveg eins getað það eftir að hafa verið dissaður af Gísla Marteini í beinni - - -

USA ætla bara að vera tussur við Þjóðverja! Það kemur nú ekki á óvart en merkilegt að rúv skyldi ekki birta orð um það í fréttum í kvöld - týpískt!


February 14, 2003

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 1:56 pm

Jahúú - ég er að fara í bústað, liggaliggalá. Svo ætla ég líka að gera heiðarlega tilraun til að vinna og læra. Jonna og Borgari til skemmtunar.

Annars verð ég að lýsa yfir ánægju minni með heimsókna aukningu á síðuna mína - reyndar var Bjórmálaráðherra að ibba sig yfir því að ég væri ekki með kommenta kerfi - ÉG BARA KANNIGGI ÁIDDA! Þannig ef einhver býður sig fram mér til hjálpar - ekkert mál! Annars býð ég bara góða helgi - pís át.


February 13, 2003

Filed under: Almennt — Helga Þórey @ 1:56 pm

Hefur einhver tekið eftir því hvað ég er með frábæra linka. Ég verð nú að segja að mér finnst mínir linkar vera linka bestir - hahaha. Svo er ég líka með alveg stórkostlegan aulahúmor, hnegg hnegg.

Í gær fór ég á Sirkus og sá Einar Sonic dj-ast, það var bara nokkuð gott - voða fín tónlist, Gainsbourg ásamt öðrum pervertum. Mér finnst Gainsbourg æði - og er í mínus yfir því að diskurinn minn sé bilaður að hluta :( Ég var reyndar nógu snjöll að gefa lillesös hann í jólagjöf - brennbrenn.

Ætlar einhver að segja mér afhverju það er alltaf svona fínt veður? Gat Ísland ekki fengið blíðuna í þessu sýnishorni af sumri sem var hér í fyrra? Ég ætla að hringja í guð…………..


Next Page »