Þegar þýða á frétt getur eitt og annað farist fyrir. Sumt er skiljanlegt því á tungutaki og frásagnarhætti getur verið erfitt að átta sig á. Sumt er þó borðleggjandi. Á DV.is má sjá frétt um mann sem seldi dóttur sína. Hún er svona:
Seldi dóttur sína fyrir bjór og peninga
Lögreglan í Greenfield í Bandaríkjunum hefur handtekið karlmann sem grunaður erum að hafa selt fjórtán ára dóttur sína til hjónabands í skiptum fyrir peninga, bjór og kjöt.
Upp komst um málið þegar faðirinn, sem er 36 ára, fór sjálfur til lögreglunnar til að tilkynna um að samningurinn hefði ekki verið uppfylltur og vildi hann fá aðstoð lögreglu við að endurheimta dóttur sína. Maðurinn var handtekinn í kjölfarið grunaður um mansal.
Við yfirheyrslur hjá lögreglu sagði maðurinn að hann hafi átt að fá 16 þúsund dali, eða 2 milljónir króna, 100 kassa af bjór og nokkra kassa af kjöti í skiptum fyrir dóttur sína. Lögreglan handtók síðan átján ára gamlan pilt en hann er grunaður um að hafa keypt dóttur mannsins.
Að sögn lögreglu virðist stúlkan hafa verið viljug til að yfirgefa föður sinn fyrir piltinn en þar sem hún er undir lögaldri hafa mennirnir báðir verið handteknir. Faðirinn fyrir mansal en pilturinn fyrir að hafa samræði við stúlkuna. Greenfield er lítið bændasamfélag í miðríkjum Bandaríkjanna en að sögn lögreglu eru skipulögð hjónabönd stúlkna undir lögaldri vandamál í samfélaginu.
Þegar fréttin er gúggluð kemur annað í ljós. Svona birtist hún hjá Monterey Herald.
Police say Greenfield man sold daughter for marriage
Greenfield police say they arrested a 36-year-old man who arranged to sell his 14-year-old daughter to a man for marriage in exchange for $16,000, 150 cases of beer, several cases of meat and soda and wine.
An 18-year-old Greenfield man who lived with the girl for a week after the purported transaction was detained on suspicion of statutory rape.
Greenfield Police Chief Joe Grebmeier said officers have heard several accounts of arranged marriages between young girls and older men, but this case developed in a way that made arrests and prosecution more possible.
Marcelino de Jesus Martinez was arrested Sunday on suspicion of accepting the offer of money, beer and meat to place his daughter with Margarito de Jesus Galindo, police said.
Police became aware of the transaction after Martinez asked police to return his daughter. The father said the girl had run away, but police came to believe that he wanted her back because her suitor hadn’t paid up, Grebmeirer said.
“We were working on this one kind of backward. We hear about these things all the time, but they are kind of tough to investigate or prove,” Grebmeier said today.
Grebmeier said arranged marriages are common in many cultures, but California has laws against sexual relations with a person under 18 and against human trafficking. State law also prohibits arranged marriage in which coercion is used on one or both parties, he said.
He said the girl apparently went willingly to the young man’s home, but at 14 she is under the state’s age of consent and can’t legally marry.
Hér er svo færsla um Greenfield á Wikipediu en þar kemur skýrt fram hvar bærinn er staðsettur - fyrir þá sem höfðu ekki séð það út ennþá.